TTT- starf – Kirkjustarf fyrir krakka á aldrinum 10-12 ára byrjar í Langholtskirkju

Við í Langholtskirkju erum að byrja með kirkjustarf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára í kirkjunni alla þriðjudaga kl. 17.00 -18.00.

Starfið hefst næstkomandi þriðjudag, 13. október og það Rebekka Róbertsdóttir sem leiðir starfið en hún er alvön kirkjustarfi og er búin að undirbúa skemmtilega dagskrá fyrir krakkana fram að jólum,

Við munum fara í leiki, halda Halloweenball, ratleikir, feluleikir í kirkjunni og margt fleira skemmtilegt.

Ekki þarf að skrá sérstaklega í starfið, bara mæta á þriðjudaginn kemur í kirkjuna kl. 17.00 og hafa gaman og kynnast kirkjunni okkar á skemmtilegan hátt í leik og fjöri.

Hlökkum til að sjá sem flesta.