Stóri salur

Í safnaðarheimili Langholtssóknar eru fallegir veislusalir.

Stærri salurinn tekur allt að 120 manns í sæti en sá minni 60 manns. Ennfremur hentar vel að hafa standandi veislu eða erfi í salarkynnum safnaðarheimilisins.

Góð aðstaða er til funda eða til ráðstefnuhalds. Skjávarpi, tjald og hljóðkerfi er á staðnum til afnota.

Bókanir og upplýsingar
Bókanir og frekari upplýsingar um veislu og fundarsali safnaðarheimilis Langholtskirkju eru veittar í gegnum netfangið langholtskirkja@langholtskirkja.is Einnig er hægt að fá upplýsingar í síma kirkjunnar 789 1300.

Erfidrykkjur 

Varðandi erfidrykkjur virka daga þá er bæði hægt að koma með eigin veitingar eða panta í gegnum kirkjuvörð en þá er það Stúdíó brauð sem selur veitingar í erfidrykkjurnar. Kirkjuvörður sér um að panta hjá Stúdíó brauð en aðstandendur fá einn reikning frá Langholtskirkju sem innifelur eftirfarandi : Þjónustu, veitingar, kaffi, gos, salarleigu, borðbúnað og rekstrarvörur.

Gott að vita
Mjög hófleg meðferð léttra vína og bjórs er möguleg í veislum í safnaðarheimilinu. Veislum þarf að vera lokið um miðnætti. Reykingar eru bannaðar í húsinu.

Safnaðarheimili Langholtskirkju

langholtskirkja@langholtskirkja.is.
Sólheimum 11-13
104 Reykjavík
Sími : 789 1300

 

Hér getið þið komið inn í gegnum Google Street View