Sunnudagaskóli Langholtskirkju

Börn á öllum aldri velkomin!

Sunnudagaskólinn hefst fyrsta sunnudag í september. Við byrjum hverja stund inn í Langholtskirkju kl. 11 með öðrum kirkjugestum, svo göngum við saman inn í litla salinn eftir lofgjörðarsálminn, þar sem við syngjum, spjöllum, dönsum, biðjum og horfum saman á myndband tengt biblíusögu dagsins. Stundin tekur u.þ.b. 40 mínútur og þá fáum við okkur að borða saman inn í safnaðarheimili, spjöllum, leikum og litum ef við viljum. 

Þemað veturinn 2026-27 er “Þér eruð ljós heimsins”, og áherslan verður lögð á samkennd, vináttu og kærleika. Á hverju ári er tekið fyrir eitt lag sem sungið er í upphafi hverrar stundar, á meðan kveikt er á kertinu, og lagið okkar í ár er 

Þetta litla ljósið mitt það skal lýsa bjart
þetta litla ljósið mitt það skal lýsa bjart 
lýsa bjart, lýsa bjart, lýsa bjart.

Sálmur 164 í sálmabók barnanna.

Öll börn sem koma fá límmiðabók afhenta í fyrsta skiptið og í hverri sunnudagaskóla samveru fá börnin svo nýjan límmiða sem þau setja í bókina sína, tengdan sögu dagsins.

Sara Gríms, sér um sunnudagaskólann.