Krúttakór Langholtskirkju

Krúttakór Langholtskirkju er ætlaður börnum af öllum kynjum á aldrinum fjögurra til sex ára. Æfingar fara fram einu sinni í viku og endar hver önn á tónleikum. Kórinn tekur einnig þátt í fjölskyldumessu tvisvar sinnum á önn. Kórinn tekur til starfa í byrjun september og æfir út apríl.

Skráning opnar 12. ágúst 2024.

Skráning hér

(smelltu á hnappinn hér að ofan til að opna skráningu í gegnum Abler.is)

Kennslugjald fyrir hvora önn er 40.000.- kr
Foreldrar þeirra barna sem hafa hafið grunnskólanám geta nýtt sér frístundakort Reykjavíkurborgar.

Æfingar hefjast 4. septebmer 2024 og fara fram á miðvikudögum milli kl. 16 og 18 í safnaðarheimili Langholtskirkju:

Börn fædd 2020 æfa kl. 16:15- 16:45
Börn fædd 2019 æfa kl. 16:50 – 17:20
Börn fædd 2018 æfa kl. 17:30 – 18:00

Kórstjórar veturinn 2024-2025 eru Sara Grímsdóttir og María Ösp Ómarsdóttir.

Tölvupóstfang: kruttakorinn@gmail.com