Tónlistarveisla Ólafar Kolbrúnar í minningu Jóns Stefánssonar 23. febrúar kl. 16

Í tilefni af 70 ára afmæli Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur verða haldnir minningartónleikar um Jón Stefánsson í Langholtskirkju 23. febrúar 2019 kl 16:00. Margir af fremstu tónlistarmönnum landsins, nemendur og samstarfsfólk Jóns og Ólafar Kolbrúnar í gegn um tíðina, munu þar koma saman til að heiðra minningu Jóns.

Á tónleikunum verður úthlutað í fyrsta sinn úr Minningarsjóði Jóns Stefánssonar. Aðgangseyrir rennur óskiptur í sjóðinn.

“Markmið sjóðsins er að styðja ungt fólk sem er að hasla sér völl á sviði tónlistar og styrkja önnur verkefni sem stjórn sjóðsins metur að falli að hugsjónum Jóns Stefánssonar. Þessi verkefni geta verið af ýmsum toga og er það stjórnar stjóðsins að velja verkefni eftir reglum sjóðsins á hverjum tíma. Almennt er miðað við að tilnefndir einstaklingar hafi lokið framhaldsnámi í tónlist og séu að hefja eða komnir í tónlistarnám á háskólastigi.“

www.minningarsjodurjs.com

Meðal þeirra sem fram koma eru:

Eivør
Garðar Cortes
Viðar Gunnarsson
Harpa Harðardóttir
Þóra Einarsdóttir
Hrönn Þráinsdóttir
Lára Bryndís Eggertsdóttir
Harpa Ósk Björnsdóttir
Bergþór Pálsson
Kór Langholtskirkju
Auður Gunnarsdóttir, einsöngvari
Birgir Stefánsson, einsöngvari
Björn Jónsson, einsöngvari
Egill Árni Pálsson, einsöngvari
Garðar Cortes, einsöngvari
Graduale Nobili, kór
Halldór Torfason, kynnir, söngvari
Janet Haney, píanó
Kammerkór Langholtskirkju, kór
Lyrika, kvartett
Oddur Arnþór Jónsson, einsöngvari
Pétur Úlfarsson, einsöngvari og fiðluleikari
Salný Vala Óskardóttir, einsöngvari
Signý Sæmundsdóttir, einsöngvari
Sigrún Pálmadóttir, einsöngvari
Valgerður Guðnadóttir, einsöngvari