Tónleikar Reinhold Friedrich Brass Kvintetsins þrijðudaginn 25 nóv kl. 20

Reinhold Friedrich Brass Kvintettinn er alþjóðlegur brass kvintett stofnaður árið 2017 af trompetleikaranum Prof. Reinhold Friedrich. Reinhold vildi fá fimm stjörnuspilara, alla með stöðu í evrópskum sinfóníuhljómsveitum, til að koma saman í kammerhóp drifinn af músíkölskum prófessjónalisma, áhuga á samsetningu tónverkavals fyrir hópinn og gleðinni við að skapa tónlist saman á háu stigi.
Meðlimir kvintettsins eru trompetleikararnir Reinhold Friedrich (Þýskaland) og Jeroen Berwaerts (Belgía), hornleikarinn Lasse Mauritzen (Danmörk), básúnuleikarinn Ian Bousfield (England) og túbuleikarinn Thomas Røisland (Noregur). Efnisskráin býður upp á brass kvintetta eftir dönsku tónskáldin Thorvald Hansen og Carl Nielsen, svítur eftir þann enska John Dowland og hollensk-belgíska Frederic Devreese, ásamt verkum eftir Vivaldi, Malcom Arnold og Bítlana.