Sunnudagur 18. apríl messa kl. 11.
Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar, félagar úr Fílharmóníunni syngja undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organista.
Vegna sóttvarna hefur kirkjunni verið skipt í sóttvarnarhólf í samræmi við leiðbeiningar landlæknis.
Kirkjugestir eru beðnir um að bera andlitsgrímu við komuna í kirkjuna þar til sest er og virða tveggja metra fjarlægð.
Hugsum í lausnum og verum samstillt.
Verið velkomin.