Sunnudagur 17. mars: Messa og sunnudagaskóli kl. 11

Messa og sunnudagaskóli kl. 11.

Sara Grímsdóttir söngkona leiðir sunnudagaskólann.

Góðir Grannar syngja með og fyrir messugesti undir stjórn Egils Gunnarssonar og undirleik Magnúsar Ragnarssonar organista. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar ásamt messuþjónum. Léttur hádegisverður að messu lokinni.

Aðalsafnaðarfundur Langholtssóknar að hádegisverði loknum, hefðbundin aðalfundarstörf. Verið hjartanlega velkomin.