Safnaðarstarf á nýju ári hefst aðra vikuna í janúar

Almennt safnaðarstarf í Langholtskirkju á nýju ári hefst aðra vikuna í janúar, eða sem hér segir:

Sunnudagur 7. janúar – messa og sunnudagaskóli

Mánudagur 8. janúar – kóræfing hjá Krúttakór og prjónakaffi

Þriðjudagur 9. janúar – barnastarf fyrir 5. – 7. bekk og kóræfing hjá Graduale Liberi, Graduale Futuri og Gradualekór Langholtskirkju

Miðvikudagur 10. janúar – barnastarf fyrir 3.-4. bekk, starf eldri borgara og kóræfing hjá Krúttakór

Aðrir fastir liðir, svo sem sporafundir, eru á sama tíma og áður. Barnastarf fyrir 1. -2 bekk hefst fyrstu vikuna í febrúar. Dagskrá fermingarfræslunnar á vorönn er að finna inn á Facebook-hópnum.

Starfsfólk og sjálfboðaliðar Langholtskirkju óska landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs. Við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýju ári. Verið velkomin í Langholtskirkju.