Opið hús á miðvikudögum hefst 18. janúar

Opið hús er í Langholtskirkju alla miðvikudaga yfir vetrartímann og hefst aðra vikuna í september. Umsjón starfsins hafa þær Sigríður Ásgeirsdótir og Helga Guðmundsdóttir, ásamt hópi sjálfboðaliða.

Dagskráin er með hefðbundnu sniði:

Helgistund í kirkjunni kl. 12:10. Léttur hádegisverður er fram borinn kl. 12:30. Eftir matinn er samsöngur með organista kirkjunnar og síðan er tekið til við að spila brids og vist, vinna í höndunum eða bara spjalla saman. Síðdegiskaffi er borið fram kl. 15.00.  Hádegisverður og kaffi er gegn vægu gjaldi.

Öll eru velkomin án tillits til búsetu. Þau sem vilja spila eru beðn að vera mætt á staðinn kl. 13.00 þegar raðað er á spilaborðin. Öðrum er heimilt að mæta eftir hentugleika. Sóknarbörn sem komast ekki á eigin vegum geta fengið far til og frá kirkju gegn vægu gjaldi.

Öll eru hjartanlega velkomin, bæði þau sem verið hafa með okkur áður sem og nýir gestir.