Minningarstund fyrir látna ástvini sunnudaginn 6. nóvember

Tendruð verða bænaljós í minningu þeirra sem látin eru sunnudaginn 6. nóvember kl. 17:00 í Langholtskirkju. Sálumessa Fauré verður flutt af Kór Langholtskirkju. Magnús Ragnarsson organisti leikur á orgel, einsöngvarar verða þau Hekla Karen Alexandersdóttir og Ólafur Freyr Birkisson úr röðum kórsins. Stjórnandi verður Stefan Sand Groves. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar.
Aðgangur er ókeypis.