Messa 21. febrúar kl. 11

Íris Björk Gunnarsdóttir söngkona syngur einsöng.
Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar.
Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organista.
Marta og Pétur taka á móti börnunum í sunnudagaskólanum með söng og sögu.
Eldri borgara starfið hefst miðvikudaginn 24. febrúar kl. 12:10 með helgistund í kirkjunni og allt barnastarfið er í sinni rútínu virka daga.

Verið hjartanlega velkomin.