Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 6. september kl. 11.00

Nú byrjum við vetrarstarfið í Langholtskirkju eftir sumarleyfin og fyrsta messa haustsins verður í kirkjunni sunnudaginn 6. september nk. kl 11.00. Sunnudagaskólinn okkar hefst á sama tíma.

sr. Ásta Ingibjörg messar. Nobili syngur undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur. Magnús organisti leikur undir. Sara Grímsdóttir leiðir sunnudagaskólann.

Messukaffið okkar er á sínum stað í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Við hvetjum fermingarbörn og foreldra til að mæta til þessarar fyrstu messu og taka þátt í helgihaldinu í vetur.

Verið velkomin!