Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 29. janúar

Verið velkomin til kirkju sunnudaginn 29. janúar kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar. Organisti er Árni Heiðar Karlsson. Kór Langholtskirkju leiðir safnaðarsöng og tekur lagið fyrir kirkjugesti. Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og messuþjónar aðstoða við helgihaldið.

Sunnudagaskólinn fer fram á sama tíma í litla sal. Snævar J. Andrjesson og Sara Grímsdóttir taka vel á móti börnum á öllum aldri. Kaffi, djús, ávextir og föndur eftir stundina. Við hlökkum til að taka á móti ykkur!