Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 19. mars

Verið velkomin til messu sunnudaginn 19. mars kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar. Organisti er Sólveig Anna Aradóttir. Félagar úr Kór Langholtskirkju leiða safnaðarsöng. Fermingarstúlka verður skírð í athöfninni. Messuþjónar aðstoða við helgihaldið.

Sara Grímsdóttir og Snævar Jón Andrjesson taka vel á móti börnum á öllum aldri í sunnudagaskólanum á sama tíma. Kaffi og ávextir í safnaðarheimili eftir stundina. Við hlökkum til að taka á móti ykkur!