Messa og sunnudagaskóli, sunnudaginn 10. mars kl.11

Messa og sunnudagaskóli næsta sunnudag sem er 10. mars kl. 11. Söngsveitin Fílharmónía syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar organista. Sara Grímsdóttir söngkona, leiðir sunnudagaskólann. Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Léttur hádegisverður að messu lokinni. Fermingarbörn hvött til að mæta í kyrtlamátun!