Annar sunnudagur í aðventu kl.11.
Messa og sunnudagaskóli, sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar, Sara Grímsdóttir söngkona leiðir sunnudagaskólann. Góðir Grannar syngja undir stjórn Sólveigar Sigríðar Einarsdóttur kórstjóra og undirleik Magnúsar Ragnarssonar organista. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

