Messa sunnudaginn 25. apríl kl. 11. Aldís Rut Gísladóttir prestur þjónar, Nobili kórinn syngur undir sjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur og Magnúsar Ragnarssonar organista.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í safnaðarheimili Langholtksirkju og taka Marta og Pétur vel á móti börnunum og foreldrum þeirra.
Vegna sóttvarna hefur kirkjunni verið skipt í sóttvarnarhólf í samræmi við leiðbeiningar landlæknis. Við förum varlega og hlúum að persónulegum sóttvörnum, berum andlitsgrímur og höldum fjarlægðartakmörkum.