Messa og kynningarfundur fyrir foreldra og fermingarbörn vorsins 2027 verður í Langholtskirkju sunnudaginn 31. maí kl. 11.00. Við bjóðum væntanlegum fermingarbörnum og foreldrum til messu þennan dag og að messu lokinni verður stuttur kynningarfundur þar sem farið verður yfir helstu atriði fræðslunnar næsta vetur 2026/2027. Að loknum fundi verður svo opnað fyrir skráningu í fræðsluna og á fermingardaga næsta vors.
Fermingardagar vorsins 2027 eru sem hér segir:
Pálmasunnudagur
Skírdagur
Sumardagurinn fyrsti
Sjómannadagurinn.
Við hlökkum til að taka á móti nýjum hópi fermingarbarna í haust!
sr. Ásta Ingibjörg og sr. Sunna Dóra

