Kórvesper miðvikudaginn 25. október kl. 18

Evensong

Miðvikudaginn 25. október kl. 18 flytja nemendur úr Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands, kórvesper (evensong) í Langholtsskirkju.

Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina ásamt organistanum og kennaranum Magnúsi Ragnarssyni.

Evensong er aldagamalt form með ríkulegri tónlist, upprunninn í Englandi. Þar skiptast á lestrar og söngvar eftir ákveðinni fyrirmynd, og gegna Biblíuljóð stóru hlutverki.

Nærandi stund með fallegri tónlist og allir eru hjartanlega velkomnir.