Skráning í Kórskóla Langholtskirkju

Kórskóli Langholtskirkju var stofnaður árið 1991 af Jóni Stefánssyni. Í hverri viku sækja um 150 börn og ungmenni kóræfingar í kirkjunni og taka þátt í metnaðarfullu tónlistarstarfi yfir veturinn. Æfingar hefjast 6. september og fara fram í safnaðarheimili Langholtskirkju.

Krúttakór Langholtskirkju  er ætlaður söngfuglum á aldrinum fjögurra til sex ára. Fullt er í 4 ára hóp, en örfá pláss laus í 5 og 6 ára hóp á vorönn. Skráning hér.

Graduale Liberi er ætlaður börnum í 2. og 3. bekk og hentar jafnt byrjendum sem og börnum sem áður hafa sungið í Krúttakórnum. Skráning hér.

Graduale Futuri er eldri barnakór kirkjunnar og er ætlaður börnum í 4. – 6. bekk. Skráning hér.

Gradualekór Langholtskirkju er metnaðarfullur unglingakór fyrir 12 ára og eldri. Skráning hér.