kl. 17 sunnudaginn 4. nóvember. Allra heilagra messa, minningarstund um látna ástvini.

Tendruð verða bænaljós í minningu þeirra sem látin eru sunnudaginn 5. nóvember kl. 17:00 í Langholtskirkju.
Sálumessa Fauré verður flutt af Kór Langholtskirkju sem og Ruht wohl úr Jóhannesarpassíunni eftir Johann Sebastian Bach.
Magnús Ragnarsson organisti leikur á orgel, einsöngvarar verða þau Hekla Karen Alexandersdóttir og Ólafur Freyr Birkisson úr röðum kórsins. Stjórnendur verða Sunna Karen Einarsdóttir og Margrét Björk Daðadóttir. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar.
Aðgangur er ókeypis.