Jón Stefánsson hefði orðið 80 ára í dag. Hann tók við starfi organista Langholtssafnaðar árið 1964, þá aðeins 17 ára að aldri. Jón flutti öll helstu kórverk kirkjubókmenntanna eins og Stóru messu Mozarts, Messías eftir Handel, Jólaoratoríuna, Jóhannesarpassíuna, Mattheusarpassíuna og H-moll messuna eftr Bach, Petite Messe solenelle eftir Rossini og Guðbrandsmessu sem Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi sérstaklega fyrir Kór Langholtskirkju. Kórinn fór í fjöldamargar tónleikaferðir undir stjórn Jóns, m.a. til Norðurlandanna, mið- og suður- Evrópu, Ísrael, Kanada, Bandaríkjanna og Englands þar sem hann flutti m.a. Messu í h-moll eftir Bach í Barbican tónleikahöllinni með Ensku kammersveitinni. Kórinn gaf út fjölda af hljómplötum og geisladiskum m.a. „Land míns föður“, „An Anthology of Icelandic Choir Music“ (BIS í Svíþjóð), „Jóhannesarpassían“ eftir Bach, „Barn er oss fætt“ og „Ísland er lýðveldi“.
Jón stofnaði Kórskóla Langholtskirkju árið 1991. Markmið skólans er að veita börnum og unglingum staðgóða tónlistarmenntun með markvissri þjálfun raddar og heyrnar sem miðast að þátttöku í kórstarfi. Upp úr kórskólanum varð svo fljótlega til Gradualekór Langholtskirkju, barna- og unglingakór sem varð til þegar fólk óx upp úr skólanum. Árið 1999 fór Gradualekórinn í vel heppnaða ferð til Kanada en um haustið hætti allstór hópur í kórnum sökum aldurs. Mikil eftirsjá var af þessum frábæru söngvurum og úr varð að nýr kór var stofnaður árið 2000 og fékk nafnið Graduale Nobili. Kórinn vakti gífurlega athygli strax og voru umsagnir gagnrýnenda eftir fyrstu sjálfstæðu tónleikana mjög lofsamlegar. Jón lést árið 2016, tæplega sjötugur að aldri.
Þann 16 september, á vígsludegi Langholtskirkju, verða haldnir tónleikar til heiðurs Jóni þar sem fram koma Kór Langholtskirkju, Graduale Nobili, Gradualekór Langholtskirkju og Góðir grannar. Flutt verða eftirlætiskórverk Jóns og gefst áheyrendum tækifæri til að syngja nokkur verk með kórnum. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

