Jólasöngvar Langholtskirkju 19. og 20 desember kl. 17:00

Fertugustu og áttundu Jólasöngvar Langholtskirkju verða haldnir í Langholtskirkju dagana 19. og 20. desember.
Jólasöngvarnir eru ómissandi liður í hátíðahaldi margra og að venju verður boðið upp á rjúkandi jólasúkkulaði og piparkökur í hléi.

Miðasala fer fram á Tix.is

Fram koma Kór Langholtskirkju, Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar og Sunnu Karenar Einarsdóttur.

Einsöngvari verður Harpa Ósk Björnsdóttir, en auk hennar koma fram einsöngvarar úr kórunum.

Hljómsveitina skipa:

  • Hjörleifur Valsson, fiðla.
  • Hrefna Vala Kristjánsdóttir, flauta.
  • Ástvaldur Traustason, píanó/orgel.
  • Richard Korn, kontrabassi.
  • Frank Aarnink, slagverk.