Helgihald í Langholtskirkju í Kyrruviku og um páska 2016

 

Sunnudagurinn 20. mars – Pálmasunnudagur

Fermingarmessa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir og sr. Jóhanna Gísladóttir þjóna. Organisti Þorvaldur Örn Davíðsson. Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja.

Fimmtudagurinn 24. mars – Skírdagur  

Fermingarmessa kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir og sr. Jóhanna Gísladóttir þjóna. Organisti Birna Kristín Ásbjörnsdóttir. Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja.

Föstudagurinn 25. mars – Föstudagurinn langi  

Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar. Organisti Steinar Logi Helgason. Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja.

Sunnudagurinn 27. mars – Páskadagur

Hátíðarguðsþjónusta kl. 9. Ath. breyttan messutíma. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar. Organisti Steinar Logi Helgason. Kór Langholtskirkju auk eldri félaga leiða safnaðarsöng. Morgunverðarhlaðborð að messu lokinni.

Sameiginlegur sunnudagaskóla safnaðanna í Laugardalnum á Páskadag kl. 11. Hist verður við selalaugina í Húsdýragarðinum og gengið þaðan saman á Kaffi Flóru. Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna.

 

Við allar athafnirnar aðstoða Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og sjálfboðaliðar við helgihaldið. Sóknarnefnd og starfsfólk Langholtskirkju biður öllum friðar og gleði á páskum. Verið velkomin í kirkjuna.