Haustmarkaður Kvenfélagsins 27. september

Hinn árlegi og sívinsæli markaður Kvenfélags Langholtssóknar verður haldinn í safnaðarheimili Langholtskirkju sunnudaginn 27. september.

Markaðurinn hefst kl. 12:15 og stendur til kl. 15.  Ekki aðeins er um að ræða nytjamarkað heldur er einnig hlutavelta þar sem engin eru núllin og kökubasar.

Verið hjartanlega velkomin.