Sunnudagur 21. desember kl. 11, fjórði sunnudagur í aðventu.
Söngvar og lestrar aðventunnar, hlúum að kyrrð hið innra og ró. Fagnaðarboðskapur aðventunnar og eftirvænting nærð í tali og tónum. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar, félagar úr Fílharmóníunni syngja undir stjórn og undirleik Magnúsar Ragnarssonar organista. Léttur hádegisverður og samfélag í safnaðarheimilinu að athöfn lokinni.
Sunnudagaskólinn hefst að nýju 11. janúar.
Verið hjartanlega velkomin.

