Fjölskyldumessa sunnudaginn 26. september kl. 11

Fjölskyldumessa sunnudaginn 26. september kl. 11 í Langholtskirkju. Börn úr krúttakórnum syngja undir stjórn Bjargar Þórsdóttur og Móeiðar Kristjánsdóttur. Prestur er sr. Aldís Rut Gísladóttir.

Kaffisopi eftir messu og öll hjartanlega velkomin.

Fagra nafnið frelsarans

fylgi þér og hlífi.

Ávallt vaki augu hans

yfir þínu lífi.

(Gamalt vers)