Fjölskyldumessa sunnudaginn 18. nóvember kl. 11

Verið velkomin til kirkju sunnudaginn 18. nóvember kl. 11. Barnakórinn Graduale Liberi undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur leiðir safnaðarsöng og tekur lagið fyrir kirkjugesti. Sr. Jóhanna Gísladóttir og Magnús Ragnarsson organisti þjóna ásamt Aðalsteini Guðmundssyni kirkjuverði og messuþjónum. Léttur hádegisverður í boði í safnaðarheimili eftir stundina.