Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 10. apríl kl. 11

Sunnudaginn 10. apríl fer fram fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir og Snævar Jón Andrjesson æskulýðsfulltrúi þjóna. Yngri hópar Krúttakórs Langholtskirkju syngja fyrir okkur og með okkur undir stjórn Thelmu Hrannar Sigurdórsdóttur og Ragnheiðar Söru Grímsdóttur. Bryndís Baldvinsdóttir spilar undir. Messuþjónar aðstoða við helgihaldið.

Stundin er létt og skemmtileg og hentar öllum aldurhópum. Kaffi, djús og epli í safnaðarheimili eftir samveruna. Allir hjartanlega velkomnir!