Fermingarfræðsla veturinn 2026-7

Fermingarfræðslan verður með hefðbundnum hætti næsta vetur 2026-2027. Byrjað verður að skrá í fræðsluna um miðjan maí og mun skráning fara fram í gegnum Ablar kerfið. Skráningardagur verður kynntur síðar ásamt nánari tilhögun á fræðslu næsta vetrar.

Fermingardagar verða þeir sömu og fyrri ár:

Pálmasunnudagur

Skirdagur

Sumardagurinn fyrsti og Sjómannadagur.

Við munum setja hér inn nánari fréttir og upphaf skráningar þegar nær dregur.

Við hlökkum til að taka á móti næsta fermingarhópi í Langholtskirkju í haust 2026.

sr. Ásta Ingibjörg og sr. Sunna Dóra