Skráning hafin : Fermingarfræðsla 2025 – 2026

Fermingarfræðsla safnaðanna við Laugardal stendur öllum unglingum í 8. bekk til boða, óháð trúfélagastöðu, hvort sem ferming um vorið er ákveðin eða ekki.  Fermingarfræðslan er hins vegar nauðsynlegur undirbúningur fermingar sem og skírn.

Skráðu barnið þitt hér í fermingarfræðsluna: SKRÁNINGARBLAÐ
Allar fyrirspurnir vegna fræðslunnar skal senda á astalangholt@gmail.com
Þegar barnið er skráð skal færa inn auk annarra upplýsinga:
a. Hvar barnið óskar að sækja fermingarfræðslu.
b. Hvar barnið óskar að fermast.

c. Ósk um fermingardag ef vill.

Markmið fræðslunnar er :
– Efla almenna þekkingu á kristinni trú.
– Vekja unglingana til umhugsunar um eigin lífsskoðanir.
– Ræða og æfa okkur í leiðum til að efla andlega heilsu með íhugun og bæn.
– Gefa unglingunum tækifæri á að kynnast starfinu í kirkjunni sinni.

Fermingarfræðslan verður kennd í lotum en gert ráð fyrir að börnin mæti jafnt og þétt í messur yfir veturinn í fylgd fullorðinna.  Messumætingin er mikilvægur hluti fræðslunnar.
Upphafssamvera vetrarins er í messu 7. september kl.11. 
Foreldrafundur í Langholtskirkju fimmtudaginn 2. október kl. 17:30-18:15, börnin þurfa ekki að mæta.
Rætt verður um kennsluna í vetur og Vatnaskógarferðina.

Kennsla: 

6.-9. október kl. 17-19 alla dagana.

6. nóv. kl. 17-18:30.

4. des kl. 17-18:30.

29. jan kl. 17-18:30.

26. febrúar kl. 17-18:30, foreldrar og börn samvera.

26. mars kl. 17-18:30.

Farið verður í sólarhrings fermingarferðalag í Vatnaskóg föstudaginn 10. október.

Umsjón fræðslunnar er í höndum sr. Ástu Ingibjargar Pétursdóttur en hún og sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir sjá um kennsluna og ferma börnin.  Ef þið viljið hafa samband þá sendið línu á astalangholt@gmail.com

Þar sem við höfum lagt okkur fram við að fræðslan nýtist sem best þá biðjum við ykkur um að hjálpa börnunum að setja fermingarfræðslutímana í forgang svo börnin fái sem mest út úr fræðslunni.
Mikilvægasti hluti fermingarundirbúningsins er þátttaka í helgihaldi kirkjunnar og setjum við hverju barni að mæta að minnsta kosti í 10 messur yfir veturinn, en það má gjarnan mæta oftar 🙂
Um leið áréttum við mikilvægi þess að einhver fullorðinn komi reglulega með barnið til helgihalds, við hvetjum ykkur til að virkja fjölskylduna, skírnarvotta, afa og ömmur, frænkur og frændur til að koma með barninu til messu, einnig geta foreldrar skipst á að koma með nokkra krakka.
Messað er alla sunnudaga vetrar í Langholtskirkju kl. 11 og boðið upp á léttan hádegisverð eftir messu.
Kostnaður vegna fermingarfræðslunnar:
Fræðslugjald samkvæmt gjaldskrá Prestafélags Íslands 24.992 kr.
Gjald fyrir lán á fermingarkyrtli 3.000 kr.
Að auki innheimtir Vatnaskógur gjald fyrir fermingarferðalagið.
Fermingardagar í Langholtskirkju árið 2026 eru:
Pálmasunnudagur
Skírdagur
Sumardagurinn
Sjómannadagurinn
Æfingar fyrir fermingarnar eru:
25. mars er fyrir börn sem fermast á Pálmasunnudag og Skírdag.
Pálmasunnudagsbörnin mæta kl. 16
Skírdagsbörnin kl.17
15. apríl kl. 16 mæta börnin sem fermast á Sumardaginn fyrsta.
3. jún í kl. 16 mæta börnin sem fermast á Sjómannadaginn.