Eldri borgarastarfið hafið

Eldri borgarastarf Langhotlskirkju er hafið og er alla miðvikudaga kl. 12.00.

Við hefjum samveruna á helgistund í kirkjunni kl. 12.10. Að henni lokinni er léttur hádegisverður í safnaðarheimili.

Að mat loknum, er hægt að spjalla, spila og eiga gott samfélag og við endum svo á kaffi og með því.

Verið hjartanlega velkomin!