Messa og sunnudagaskóli kl. 11 á annan sunnudag í aðventu.

Annar sunnudagur í aðventu kl.11. 

Messa og sunnudagaskóli, sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar, Sara Grímsdóttir söngkona leiðir sunnudagaskólann.  Góðir Grannar syngja undir stjórn Sólveigar Sigríðar Einarsdóttur kórstjóra og undirleik Magnúsar Ragnarssonar organista. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu að messu lokinni.