Skráning í Þjóðkirkjuna

Nú styttist í fyrsta desember.
Af hverju erum við að minnast á það núna hér? Mörg ykkar vita án efa af hverju en önnur ekki.
Ástæðan er sú að þann fyrsta desember á hverju ári er ákveðið hversu margir eru skráðir í hvaða trú- og lífsskoðunarfélag.
Við hvetjum ykkur því eindregið til þess að skoða ykkar skráningu því hún hefur áhrif á hvaða starfsemi er hægt að bjóða uppá í kirkjunni í þínu nærsamfélagi.
Af augljósum ástæðum tölum við fyrir því að sem flest skrái sig í Þjóðkirkjuna. Það gerum við því við veit að sú þjónusta sem kirkjan býður upp á er að stórum hluta greidd með sóknargjöldunum.
Sóknargjöldin fara ekki í það að borga fyrir yfirstjórn kirkjunnar. Þau greiða ekki laun presta, biskups, vígslubiskupa eða annarra starfskrafta biskupsstofu.
Sóknargjöldin fara beint og óskipt til þinnar heimasóknar. Sóknargjöldin borga fyrir organista, djákna, æskulýðsstarfsfólk, húsvörð og allt annað starfsfólk sem sóknin þín hefur. Sóknargjöldin standa undir kórastarfi, barna- og æskulýðsstarfi, veitingum og kaffi.
Sóknargjöldin borga fyrir viðgerðir og rekstur kirkjunnar þinnar.
Ef þú ert eða hefur verið ósátt/ur við stjórn kirkjunnar en finnst starfið sem sóknin er að vinna gott, ekki segja þig úr kirkjunni vegna þess. Það bitnar á sókninni þinni en ekki stofnuninni þjóðkirkjunni með því að segja þig úr kirkjunni.
Endilega kíkjum á island.is og skoðum hvort skráningin okkar er eins og við viljum að hún sé.
Þú getur farið inná skra.is til þess að skrá þig í Þjóðkirkjuna, þar velur þú Fólk og síðan : Trú og lífsskoðun.
Bestu kveðjur úr Langholtskirkju