Fyrsta sunnudag í aðventu er messa og sunnudagaskóli kl. 11, með léttum hádegisverði í safnaðarheimilinu á eftir.
Sama dasg verður svo haldin glæsileg aðventuhátíð í Langholtskirkju kl. 17.
Allir kórar kirkjunnar syngja aðventu- og jólatónlist hver í sínu lagi og saman. Auk þess leikur Lúðrasveitin Svanur skemmtileg jólalög, lesin verður jólasaga, elstu börnin í Krúttakórnum flytja Lúsíuleik og kirkjugestir syngja inn aðventuna.
Fram koma Kór Langholtkirkju, Graduale Nobili, Gradualekórinn, Graduale Futuri, Graduale Liberi, Krúttakórinn og Lúðrasveitin Svanur. sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir þjónar.
Aðgangur er ókeypis

