Síðasta sumarmessan 25. ágúst kl.11

Síðasta sumarmessan í bili.  Vetrarstarfið hefst þann 1. september með messu og sunnudagaskóla kl. 11.

Guðbjörg sóknarprestur þjónar, Magnús organisti spilar og Laufáskórinn syngur undir stjórn Agnesar Andrésdóttur.
Við veltum kærleiksóði Páls postula fyrir okkur.
,,Þegar ég var barn talaði ég eins og barn,
hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn. En þegar ég var orðinn fulltíða lagði ég niður barnaskapinn“.
Kaffi og meðþví í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Verið velkomin.