Messa, sunnudagaskóli og léttur hádegisverður kl. 11 sunnudaginn 29. september.

Messa og sunnudagaskóli kl. 11 sunnudaginn 29. september. Við veltum fyrir okkur og fögnum 50 ára vígsluafmæli kvenna í Þjóðkirkjunni. Sara Grímsdóttir leiðir sunnudagskólann. Gradualekórinn syngur við messuna undir stjórn Lilju Daggar Gunnarsdóttur og undirleik Magnúsar Ragnarssonar organista. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar.
Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu að messu lokinni.