Á sunnudaginn kemur, 24. nóvember, er síðasti sunnudagur kirkjuársins, nýtt kirkjuár hefst svo á fullveldisdaginn, 1. desember, sem er jafnframt fyrsti sunnudagur í aðventu. Í messunni á sunnudaginn prédikar Margrét Rut Valdimarsdóttir, guðfræðinemi. Laufáskórinn syngur undir stjórn Agnesar Jórunnar Andrésdóttur, organisti er Magnús Ragnarsson. Sunnudagaskólanum stjórnar söngkonan Sara Grímsdóttir og séra Ásta Ingibjörg Petursdóttir leiðir messuna. Eftir messu er boðið upp á léttan hádegisverð. Velkomin öll sem eitt!