Fjölskyldutónleikar 7 mars með tónlist og textum eftir Magnús Eiríksson

Laugardaginn 7 mars kl. 14 munu barna- og unglingakórar Langholtskirkju flytja lög og texta eftir Magnús Eiríksson.
Fram koma Gradualekór Langholtskirkju undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur, Graduale Liberi undir stjórn Bjargar Þórsdóttur og elsti hópurinn úr Krúttakórnum undir stjórn Söru Grímsdóttur og Svövu Rún Steingrímsdóttur.
Hljómsveitina skipa Karl Olgeirsson á píanó, Þorgrímur Jónsson á bassa, Aron Steinn Ásbjarnarson á saxófón og Sigurður Ingi Einarsson á slagverk.
Aðgangseyrir 2500 kr. og frítt inn fyrir 18 ára og yngri.
Miðasala við innganginn