Fjölskyldumessa á vígsluafmæli Langholtskirkju 15. september kl.11

Við höldum hátíð í Langholtskirkju með Fjölskyldumessu kl. 11 og hátíðarmessu kl. 14. Tilefnið er fjörtíu ára vígsluafmæli kirkjunnar. Í Fjölskyldumessunni syngja: Krúttakórinn, Graduale Liberi og Graduale Futuri undir stjórn kórstjóranna Söru Grímsdóttur og Bjargar Þórsdóttur. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar. Í messunni fáum við líka kleinu og djús.
Komdu og fagnaðu með okkur á þessum hátíðardegi.