Requiem eftir Fauré á minningarstund 1. nóvember kl. 17:00

Tendruð verða bænaljós í minningu þeirra sem látin eru sunnudaginn 1. nóvember kl. 17:00 í Langholtskirkju.
Sálumessa Gabriels Fauré verður flutt af Fílharmóníunni sem og Ruht wohl úr Jóhannesarpassíunni eftir Johann Sebastian Bach.
Agnes Jórunn Andrésdóttir stjórnar, Magnús Ragnarsson leikur á orgel.
Einsöngvarar verða þau Arna Mjöll Óðinsdóttir, sópran og Orri Jónsson, bassi.

Prestur verður Sunna Dóra Möller
Aðgangur er ókeypis.