Fermingarfræðslan í Langholtskirkju hefst með lotukennslu þann 31. ágúst nk.
Í vetur verður fermingarfræðslan verður kennd í lotum,
En gert ráð fyrir að börnin mæti jafnt og þétt í messur, frá og með 1. september en fyrsta messan í Langhotlskirkju eftir sumarmessutímann er þann 6. september kl. 11.00.
Við hefjum fræðsluna á fjögurra/fjögra daga lotu, 31. ágúst til 3. september frá kl. 17 -19.
Mætingarskylda er í alla dagana!
Hver fræðsla endar á sameiginlegri máltíð.
Eftir lotuna verður fræðsla á þriðjudögum, einu sinni í mánuði fram að fermingu.
Ef að þú átt eftir að skrá þitt barn er hlekkur inn á skráningarformið Abler á forsíðu heimasíðu kirkjunnar!
Ekki hika við að hafa samband við okkur prestana ef einhverjar spurningar vakna.
Hlökkum til að taka á móti nýjum hópi fermingarbarna í kirkju í vetur!
sr. Ásta og sr. Sunna

