Vardåsen barne- og ungdomskor í Langholtskirkju

Gradualekór Langholtskirkju fær heimsókn frá norska kórnum Vardåsen barne- og ungdomskor. Kórarnir halda sameiginlega tónleika í Langholtskirkju mánudaginn 22. júní kl. 19:30, þar sem þau flytja fjölbreytta kórtónlist bæði saman og sitt í hvoru lagi.

Stjórnendur:
Sunna Karen Einarsdóttir
Yngvild Wattum Stuksrud

Aðgangur er ókeypis og eru öll hjartanlega velkomin að koma og hlusta á þessa tvo metnaðarfullu ungmennakóra!

📍 Langholtskirkja
🗓️ Mánudagur 22. júní
🕢 Kl. 19:30
🎟️ Ókeypis aðgangur