7. sept kl. 11. Upphafsmessa vetrarstarfsins, fermingarbörn og foreldrar sérstaklega boðin velkomin.

VIð hefjum vetrarstarfið með messu kl. 11 sunnudaginn 7. september, léttar veitingar í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Ásta Ingibjörg Pétursdóttir prestur þjónar ásamt kirkjuverði og messuþjónum.

Arngerður María Árnadóttir organisti spilar og Graduale Nobili leiðir sönginn og syngur fyrir okkur.

Verið hjartanlega velkomin.