Skráning hafin : Fermingarfræðsla 2026 – 2027

Fermingarfræðsla í Langholtskirkju 2026-2027

 Fermingarfræðslan stendur öllum unglingum fæddum árið 2013 til boða, óháð trúfélagastöðu.

Og það er ekki skylda að fermast að loknu fermingarnámskeiðinu.

 

Fermingarfræðslan er hins vegar nauðsynlegur undirbúningur fermingar, og skírn.

 

Þau börn sem ekki eru skírð  en ætla að fermast  verða skírð á vorönn í sameiginlegri athöfn utan messu, eins er hægt að semja um annað fyrirkomulag við presta kirkjunnar.

Skírnin er gjaldfrjáls.

Skráning í fermingarfræðslu veturinn 2026/2027 er hafin á heimasíðu kirkjunnar: langholtskirkja.is

 

Kostnaður vegna fermingarfræðslunnar er:

Fræðslugjald samkvæmt gjaldskrá

Prestafélags Íslands: 26.188kr

 

Annar kostnaður er

gjald fyrir kyrtlhreinsun 3.000 kr.

gjald vegna dvalar í Vatnaskógi sem verður tilkynnt síðar.

 

Þau fermingarbörn sem skráð eru í Þjóðkirkjuna  fá ferðina niðurgreidda af prófastsdæminu.

 

Ef þið eruð í vafa um hvort þið eruð skráð í Þjóðkirkjuna er hægt að kanna málið inn á island.is og auðvelt að skrá sig þar með rafrænum skilríkjum.

Það er ekki skilyrði að vera í Þjóðkirkjunni til að sækja fermingarfræðslu  en þau sem eru utan Þjóðkirkjunnar          þurfa að greiða fullt gjald

Markmið fræðslunnar er:

– að efla almenna þekkingu á Biblíunni og kristinni trú.

– vekja unglingana til umhugsunar um eigin lífsskoðanir.

– ræða og æfa leiðir til að efla andlega heilsu með íhugun og bæn.

– gefa unglingunum tækifæri á að kynnast starfinu í kirkjunni sinni.

 

Fermingarfræðslan verður kennd í lotum,

En gert ráð fyrir að börnin mæti  jafnt og þétt í messur, frá og með 1. september.

 

Við hefjum fræðsluna á fjögurra/fjögra daga lotu, 31. ágúst til 3. september frá kl. 17 -19.

 

Mætingarskylda er í alla dagana!

 

Hver fræðsla endar á sameiginlegri máltíð.

 

Eftir lotuna verður fræðsla á þriðjudögum  einu sinni í mánuði fram að fermingu.

 

Fermingarfræðslutímar skiptast í kynjaskiptafræðslu og sameiginlega tíma.

Drengir mæta: 6. okt, 12. jan, 9, feb.

Stúlkur mæta: 20. okt, 19. jan, 16 feb.

Sameiginleg fræðsla

3. nóvember safna fermingarbörn fé til stuðnings Hjálparstarfi kirkjunnar

29. nóvember er sameignleg aðventustund

Þar sem við höfum lagt okkur fram um að hafa fræðsluna sem skilvirkasta og tímana sem fæsta

þá biðjum við ykkur um að hjálpa börnunum að setja fermingarfræðslutímana í forgang

svo börnin fái sem mest út úr samverunni í vetur.

Mikilvægasti hluti fermingarundirbúningsins er þátttaka í helgihaldi kirkjunnar og setjum við hverju barni að mæta að minnsta kosti í 12 messur yfir veturinn, en það má líka gjarnan mæta oftar :).

 

Fermingarbörnin munu að auki taka þátt í messuþjónustu einn sunnudag yfir veturinn og munu þau skrá sig á dag sem hentar þeim.

Við minnum á að 7. mars er æskulýðsdagur kirkjunnar og er æskulýðsmessa þann dag kl. 11, þá verður sérstök áhersla á þátttöku fermingarbarna.

 

Um leið áréttum við mikilvægi þess að einhver fullorðinn komi reglulega með barnið til helgihalds.

Við hvetjum ykkur til að virkja fjölskylduna, skírnarvotta, afa og ömmur, frænkur og frændur til að koma með barninu til messu, einnig geta foreldrar skipst á að koma með nokkur börn.

 

Við minnum á að ekki er við hæfi að hafa kveikt á farsímum í kirkjunni, hvorki í helgihaldinu né í fermingarfræðslunni. Þá eru fermingarbörn beðin um að taka tillit til annarra kirkjugesta og hafa í huga að í kirkjunni erum við á helgum stað.

 

Messað er alla sunnudaga í Langholtskirkju kl. 11 og boðið upp á léttan hádegisverð eftir messu.

 Viðtöl

 

Fermingarbörn verða kölluð til viðtals hjá prestum kirkjunnar. Áætlað að hvert barn mæti tvisvar í stutt viðtal.

Fyrri viðtölin fara fram 2-5 nóvember.

Síðari viðtölin 2-5 febrúar.

Vatnaskógur!!

 

Boðið er upp á ferð í Vatnaskóg

9 – 10 október.

Kirkjan vill gera öllum kleift að koma með í Vatnaskóg,

svo hafið samband við presta kirkjunnar  ef illa stendur á.

Foreldrafundur fyrir Vatnaskóg

mánudaginn 21. september kl. 17.15

 

Æfingar og kyrtlamátun

16. mars æfing fyrir fermingar á pálmasunnudag og skírdag, þau sem fermast á pálmasunnudag mæta kl. 16

Þau sem fermast á skírdag mæta kl. 17

20. apríl, æfing fyrir sumardaginn fyrsta kl. 16.

  1. júní, æfing fyrir sjómannadaginn kl. 16

Mikilvægt er að bóka þessar dagsetningar strax hjá sér  svo þær stangist ekki á við annan fermingarundirbúning.

 

Skyldumæting er á þessar æfingar!!

Fermingardagar 2027

Pálmasunnudagur 21. mars kl. 11

Skírdagur 25. mars kl. 11

Sumardagurinn fyrsti 22. apríl kl. 11

Sjómannadagurinn 6. júní kl. 11

 

Við munum tryggja það að öll börn geti fermst  á þeim degi sem óskað er.

 

Hægt er að breyta um fermingardag, gætið þess bara að prestar kirkjunnar séu meðvitaðir um þær breytingar.

 

Við miðum við að fermingarathöfnin fari ekki mikið yfir klukkutíma, en hver ferming tekur mislangan tíma eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni.

 

Kirkjan er það stór að hvert barn má bjóða öllu sínu fólki í fermingarathöfnina.

 

Prestar kirkjunnar,

þær sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir  og sr. Sunna Dóra Möller hafa umsjón með fræðslunni og ferma börnin.

 

Æskulýðsfélag Langholtskirkju

Æskulýðsfundir eru í boði fyrir fermingarbörn

alla fimmtudaga kl. 20.

Fjölbreytt dagskrá í boði.

Skráning er hafin og fer fram hér: Skráning í fermingarfræðslu veturinn 2026/2027