Gradualekór Langholtskirkju

Gradualekórinn er unglingakór fyrir 13 ára og eldri. Kórinn er framhald af Graduale Futuri en tekur einnig við nýjum skráningum. 

Kórinn tekur þátt í ýmsum spennandi verkefnum yfir veturinn og hefur t.d. verið í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Kórinn syngur reglulega í messum og kemur fram árlegum jóla- og vortónleikum í Langholtskirkju. Kórinn fer reglulega í kórferðalög innanlands sem utan.

Skráning hér

(smelltu á hnappinn hér að ofan til að opna skráningu í gegnum Abler.is)

Kennslugjald er 61.000 kr. fyrir hvora önn. Kennslugjöldin falla undir frístundakort Reykjavíkurborgar.

​Kóræfingar hefjast 1. september 2026 og fara fram í safnaðarheimili Langholtskirkju á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:30 – 18:30.

Kórstjóri er Sunna Karen Einarsdóttir
Netfang: korskolilangholt@gmail.com