Barnastarf fyrir 1. og 2. bekk í Langholtsskóla hefst í febrúar

Langholtskirkja býður börnum í fyrsta og öðrum bekk í Langholts- og Vogaskóla að taka þátt í skemmtilegu og fræðandi frístundarstarfi. Starfið fyrir Langholtsskóla hefst í febrúar en starfið fyrir Vogaskóla hefst eftir páskafrí.

Börnin eru sótt í skólann einn dag í viku þegar kennslu lýkur og þeim svo fylgt til baka í frístund er samverunni lýkur. Markmið starfsins er að gefa börnum hverfisins tækifæri á að kynnast kirkjunni sinni og starfsfólki hennar ásamt því að öðlast í gegnum sögur og leik grunnþekkingu í kristinni trú.

Starfsfólk Langholtskirkju annast starfið. Umsjón starfsins er í höndum Jóhönnu Gísladóttur æskulýðsprests. Nánari upplýsingar fást í gegnum netfangið johanna@wpvefhysing.is. Allt barnastarf Langholtskirkju er gjaldfrjálst.

Samverur fyrir börn í Langholtsskóla eru á fimmtudögum kl. 13.30 – 15.00. ( starfið hefst fimmtudaginn 1. febrúar)

Samverur fyrir börn í Vogaskóla eru á þriðjudögum kl. 13.30 – 15. ( starfið hefst þriðjudaginn 10. apríl ) 

Skráning í starfið fer fram í gegnum netfangið johanna@wpvefhysing.is. Mikilvægt er að skrá öll börn sem ætla að taka þátt.