Starf eldri borgara hefst á nýjan leik 16. september

Starf eldri borgara í Langholtskirkju hefst á nýjan leik 16. september 2015. Umsjón starfsins er í höndum Helgu Guðmundsdóttur og Sigríðar Ásgeirsdóttur.

Dagskráin verður með hefðbundnu sniði: Helgistund hefst í kirkjunni kl. 12:10. Léttur hádegisverður er fram borinn kl. 12:30. Eftir matinn er lagið tekið með Jóni Stefánssyni organista og síðan verður tekið til við að spila brids og vist, vinna í höndunum eða bara spjalla saman. Síðdegiskaffi er borið fram kl. 15.00.

Allir eru velkomnir án tillits til búsetu. Þeir sem vilja spila eru beðnir að vera mættir á staðinn kl. 13.00 þegar raðað er á spilaborðin. Öðrum er heimilt að mæta eftir hentugleikum. Sóknarbörn sem komast ekki á eigin vegum geta fengið far til og frá kirkju. Gjald fyrir akstur og hádegisverð verður 1.200 kr. Athugið að einungis er hægt að bjóða sóknarbörnum þessa þjónustu.

Verð á hádegismat og síðdegiskaffi verður 800 kr. Þeir sem fá sér eingöngu síðdegiskaffi greiða 350 kr.

Allir eru hjartanlega velkomnir, bæði þeir sem verið hafa með okkur áður sem og nýir gestir.