Fermingarfræðsla safnaðanna við Laugardal stendur öllum unglingum í 8. bekk til boða, óháð trúfélagastöðu, hvort sem ferming um vorið er ákveðin eða ekki.  Fermingarfræðslan er hins vegar nauðsynlegur undirbúningur fermingar sem og skírn.

Þegar barnið er skráð skal færa inn auk annarra upplýsinga:
a. Hvar barnið óskar að sækja fermingarfræðslu.
b. Hvar barnið óskar að fermast.

c. Ósk um fermingardag ef vill.

Markmið fræðslunnar er :
– Efla almenna þekkingu á kristinni trú.
– Vekja unglingana til umhugsunar um eigin lífsskoðanir.
– Ræða og æfa okkur í leiðum til að efla andlega heilsu með íhugun og bæn.
– Gefa unglingunum tækifæri á að kynnast starfinu í kirkjunni sinni.

Fermingarfræðslan verður kennd í lotum en gert ráð fyrir að börnin mæti janft og þétt í messur yfir veturinn, frá og með 10. september.
VIð hefjum fræðsluna á fjögurra daga lotu í byrjun október og förum í beinu framhaldi í Vatnaskóg,
þar sem við dveljum saman yfir helgi, við endum svo lotuna á messu í Langholtskirkju, sunnudaginn 8. október kl. 11.
Í framhaldinu munum við svo hittast mánaðarlega fram að fyrstu fermingu. Að auki verða foreldrafundir og samverur til undirbúnings að fermingarathöfnum.
Þar sem við höfum lagt okkur fram við að hafa fræðsluna sem skilvirkasta og tímana sem fæsta þá biðjum við ykkur um að hjálpa börnunum að setja fermingarfræðslutímana í forgang svo börnin fái sem mest út úr samverunni í vetur.
Mikilvægasti hluti fermingarundirbúningsins er þátttaka í helgihaldi kirkjunnar og setjum við hverju barni að mæta að minnsta kosti í 10 messur yfir veturinn, en það má líka gjarnan mæta oftar 🙂
Um leið áréttum við mikilvægi þess að einhver fullorðinn komi reglulega með barnið til helgihalds, við hvetjum ykkur til að virkja fjölskylduna, skírnarvotta, afa og ömmur, frænkur og frændur til að koma með barninu til messu, einnig geta foreldrar skipst á að koma með nokkra krakka.
Messað er alla sunnudaga í Langholtskirkju kl. 11 og boðið upp á léttan hádegisverð eftir messu.
Kostnaður vegna fermingarfræðslunnar er:
Fræðslugjald samkvæmt gjaldskrá Prestafélags Íslands.
Gjald fyrir lán á fermingarkyrtli.
Að auki innheimtir Vatnaskógur gjald fyrir fermingarferðalag.
Fermingardagar í Langholtskirkju árið 2025 eru:
Pálmasunnudagur 13. apríl
Skírdagur 17. apíl
Sumardagurinn 24. apríl
Sjómannadagurinn 1. júní